þá er það léttingur síðustu eina og hálfa vikuna, það fuku af mér 1,5 kg síðan á viku tvö nokkuð ánægð með það sérstaklega þar sem smá svindl hefur verið hjá mér upp á síðkastið
Ég og strákarnir mínir tveir erum á leið til Ak í dag og verð ég nú bara að segja það að mér kvíður svolítið fyrir að fljúga með þá, sérstaklega þann minni, ég veit að sá stóri verður duglegur en hvernig sá minni verður er mér hulin ráðgáta. Síðan á morgun ætlar mm að koma norður að vísu ekki til að hitta mig heldur til að hjálpa vinum okkar sem eru að byggja
kv. Dísa
» 1 hafa sagt sína skoðun
Síðasta vika gekk svona gríðarlega vel fyrir utan smá vegis svindl á fimmtudaginn þegar ég fór með stelpunum í gömlu vinnunni minni út að borða og í bíó á dreamgirls. auðvitað þurfti ég að fá mér popp þar sem það fylgdi með í pakkatilboðinu sem við fengum og ég át hálfan pokan eða svo en hætti um leið og ég áttaði mig á því að ég væri ekkert svöng Síðan var laugardagurinn algjör svindl dagur frá A til Ö sem kom líka svona illilega fram á vigtinni því þegar ég steig á vigtina á laugardaginn þá var eins og ég væri búin að léttast um 1,5kg þá vikuna en á sunnudagsmorgninum þá hafði 1kg komið á aftur þannig að í raun voru aðeins 0,5kg farin
Annars ætla ég ekkert að taka mark á þessu og vigta mig bara aftur á fimmtudaginn því það verður síðasta vigtun hjá mér í næstum tvær vikur þar sem ég er að fara að skella mér norður til Akureyrar í 11 daga með strákana mína tvo
MM átti afmæli í gær og vil ég óska honum til hamingju með 21 árs afmælið + 10 ár thíhíhí. Það var nú lítið gert þar sem að flestir ættingar eru fyrir norðan. Ég reyndar bauð honum á lækjarbrekku á laugardaginn þar sem við fengum okkur ljúffenga humarsúpu slurk slurk
jæja hef lítið meir að segja í bili. á fimmtudaginn kemur síðan léttingur síðustu 1,5 vikuna
» 0 hafa sagt sína skoðun
Jæja þá er vika tvö búin og þrátt fyrir að hafa svindlað fimmtudags og föstudagskvöldið og allan laugardaginn þá tókst mér að kveðja 0,5kg Verð samt að vera voða dugleg þessa vikuna því síðan á MM afmæli á sunnudaginn og verður því eitthvað gert á laugardeginum sem mun pottþétt valda því að ég muni svindla eina ferðina enn, en það finnst mér reyndar í lagi ef ég ákveð það sjálf fyrir fram en ekki lendi í því að svindla bara allt í einu því þá nagar samviskan mann alveg út í gegn.
Er nú pínu svekt með hvað fólk kommentar lítið hjá mér og vil ég því endilega hvetja ykkur til að kommenta hjá mér annars er eins og ég tali bara og tali við sjálfa mig hmmm kannski er það bara satt
» 5 hafa sagt sína skoðun
Jæja þá er fyrsta vikan búin og mér tókst að kveðja 1,5 kg ekki slæmt það + hef held ég varla haft meiri mjólk handa litla kút Tókst nú að svindla í fyrstu vikunni með því að panta pizzu á laugardagskvöldið þar sem við hjónin nenntum ekki að elda enda með 4 börn á heimilinu. Vorum nefnilega að passa tvær litlar frænkur mm. Og í þessari viku er ég að passa litla frænda minn sem er 2 ára þannig að það er nóg að gera á þessu heimili og í enda þessarar viku kemur móðir mín frá útlöndum (búin að vera þar síðan í september) og er því að sjá litla kút í fyrsta skiptið
Það er alveg með ólíkindum hvað maður þarf alltaf að halda öllu eins hjá sér á morgnanna Á hverjum morgni er sama rútínan sem fer í gegn dag eftir dag Ég byrja yfirleitt á því að hlaupa á klósettið, síðan fer ég og tannbursta mig, næst huga ég að stráknum og vek hann ef hann hefur ekki vaknað sjálfur, gef honum síðan að drekka og fæ mér að borða þegar hann er búin. Eftir þetta allt saman er skipt á drengnum því þá er bleigjan yfirleitt vel full og að lokum legg ég strákinn á teppið sitt og sest fyrir framan tölvuna til að kíkja hvað sé helst að frétta og jafnvel spjalla við einhverja á msn. Þegar þessu er lokið og litli stúfur er orðin vel pirraður og þreyttur þá er ferðinni heitið upp í rúm þar sem við tökum bæði smá vegis lúr sem fer þó ætíð eftir því hversu lengi hann vill sofa enn ekki hversu lengi ég vil sofa
Matarræðið gengur bara ósköp vel. Talaði meira að segja við ráðgjafan í DDV til að vera viss um að ég mætti ekki byrja núna og hún sagði að það væri allt í lagi, þyrfti bara að passa mig á grænmetinu, sem ég lika geri. Ætla bara að spá saman auka það. Var sko búin að gleyma hvað manni líður vel líkamlega og andlega þegar maður er á þessu matarræði, úff hvað það er gott. Sérstaklega þar sem ég hef mikinn tíma til að spá í hvað mig langar að búa mér til og hef tíma til að gera þær uppskriftir sem mig hefur langað að prófa lengi. Tíminn mætti samt vera aðeins meiri en þannig er það nú reyndar alltaf með allt sem maður vill gera finnst mér, það virðist vera sama hvað maður gerir ég vill allavega alltaf meiri tíma fyrir það, meira að segja fyrir húsverkinn sem virðast aldrei klárast
...Föstudagurinn fór ekki eins og ég ætlaði, drakk miklu minna en 10 glös og borðaði bara einn ávöxt. Hins vegar fengum við hjónin okkur nachos sem var ógeðslega gott, var reyndar búin að lofa mér því þar sem það eru margir margir mánuðir síðan ég fékk svoleiðis síðast. Greyið litli kútur fékk í magann af því daginn eftir og grét í klst eða meira og lenti mm í þvi að sjá um hann þar sem ég var í búðinni. Við hjónin enduðum síðan á horninu þar sem við fengum svaka góða fyllta kjúklingabringur og meðlæti með Rosa var gott að komast aðeins svona tvö út, maður þarf víst að huga að hjónalífinu líka ekki satt maður má ekki bara einblína á börnin eins og maður vill svo oft gera og gleyma þar með sjálfum sér og manninum.
Á laugardaginn datt ég svo aftur í he.... nammið og var komið með svo mikið ógeð í gærkvöldi að ákveðið var að núna skildi við bara byrja á DDV Ætla reyndar bara að borða um 100gr af grænmeti í máltíð og leifa mér kartöflur eða hrísgrjón smá í staðinn. Veit það er ekki þá alveg DDV en betra getur það ekki orðið eins og er því ég vil ekki að litli kútur verði veikur í maganum. Sjá svo til eftir svona viku hvort allt er í lagi og ef svo er þá ætla ég að auka grænmetið Vona bara að litli kútur fái ekkert í magan og þá getur léttingurinn hafist
Jæja mér tókst aftur að drekka 10 glös og borða 3 ávexti. Reyndar duttu við hjónin í það í gær (sælgætið) úff hvað það var gott Samt ekki sniðugt því ég ætlaði að reyna að hafa bara einn nammidag í viku þangað til ég byrja á DDV.
Litli stúfur fær líklega fyrstu máltíðina sína í dag. Erum að hugsa um að gefa honum smá að borða til að sjá hvort hann verði ekki saddari fyrir vikið og sofni þar með fljótlegra. Hann sefur alveg lengi á nóttunni en á daginn nær hann varla klst í einu. Voða skrítið. Síðan tekur það svona 1-2 tíma að láta hann sofna almennilega fyrir nóttina og greyið er svo þreyttur en nær ekki að festa svefn. Þannig að við ætlum að ath hvort að það sé fyllingin í magan sem honum vantar.
Stóri stúfur er alltaf á fullu í skólanum og leikfiminni og stækkar og þroskast með hverjum deginum. Áður en ég veit af verður hann unglingur og ég að ferma Hann er voða góður við litla bróður sinn og vill allt fyrir hann gera
Jæja það hefur enginn komið með uppástungu um hvert við hjónin getum farið að borða og hef ég enga hugmynd um hvað ég eigi að gera Endilega segið mér frá einhverjum góðum veitingastað í borginni. Langar svo að prufa eitthvað annað en þetta vanalega.
Jæja eftir að hafa sett mér markmiðið um að drekka 10 glös af vatni og 3 ávexti var ég viss um að ég hafi ætlað mér of mikið til að byrja með en mér tókst að halda því eftir í gær. Þar með er dagur 1 búin í þessari tilraun hjá mér til að breyta smátt og smátt um matarræði
Litli stúfur er því miður engan vegin að breyta svefni sínum aftur eins og hann var í byrjun janúar. Það virðist ekki skipta neinu máli hvað ég geri hann vill engan vegin sofa svona vel og lengi eins og þá Ég sem var svo ánægð með hann en núna sofnar hann um 9 - 10 og er alltaf að vakna til um 12- 1 en tekur þá langan blund. Þar með fer allt kvöldið í að reyna að halda drengnum sofandi. Kannski maður ætti bara að taka hann fram til um 12 og þá sofi hann betur. Hitt var bara svo ansi gott að ég þrjóskast alltaf við og vona að hann taki upp á því að sofa aftur svona vel.
Við hjónin ætlum að fara út að borða á föstudagskvöldið og get ég varla beðið eftir því að eiga smávegis stund með honum einum. Endilega látið mig vita ef þið vitið um einhvern góðan veitingastað til að fara á, er voða léleg í þeim málum og enda yfirleitt alltaf með því að fara aftur á sama staðinn
Vigtunin leiddi í ljós sömu tölu í gær hjá mér Ætti svo sem ekki að kvarta þar sem að ég er búin að borða eins og hestur að mér finnst alla síðustu viku. Þetta með að byrja að borða ávexti á hverjum degi og drekka meira vatn er ekki alveg að takast hjá mér og því er augljóst að ég verð að herða mig upp. Ætla helst að vera búin að missa 3-6 kíló áður en ég byrja á DDV sem verður í byrjun mars Þannig að núna verð ég að taka mig á og gera þetta að alvöru.
Ætla sem sagt að borða þrjá ávexti á dag og drekkka 10 glös af vatni á dag.
Er strax búin með tvö glös þannig að vonandi tekst þetta. Hér eftir verður því færsla á hverjum degi hvort að þetta náist og svo verður aftur vigtað á þriðjudaginn í næstu viku og séð hvort eitthvað hafi breyst
Jæja þá er helgin búin. Fór ekki alveg eins og ég ætlaði mér, því meiri lestur var reyndar á dagsskránni en aðeins voru lesnar um 43 bls yfir helgina þannig að núna er ég komin á bls 163 í skugga vindsins. Einnig ætlaði ég í bókaklúbbin en tókst að gleyma honum þegar pabbi minn bauð mér í mat matur virðist leyfa mér að gleyma ýmsu. En jæja verð bara að vera dugleg fyrir næsta bókaklúbb og klára þá bók sem lögð verður fyrir. Hefði líklega heldur ekkert verið gaman að fara þegar maður er varla hálfnaður með bók og allir að tala um hana og þá veit maður hvernig hún endar. Ég er nefnilega ein af þeim sem að les til dæmis aldrei aftan á bækur eða videomyndir því í raun vil ég ekki vita um hvað þær eru heldur tek ég bara áhættuna Kannski heimska en hefur dugað mér hingað til og mun gera það áfram.
En jæja nóg um bækur. Litli stubbur er ekki ennþá komin með nógu góða rútínu á kvöldin. Hann nær samt alltaf smá svefn kannski klst og klst þar til um miðnætti þá tekur hann loksins langa svefninn sinn skil samt ekki af hverju hann nær ekki að sofa meira á kvöldin finnst það alveg furðulegt því það tókst svo vel hérna eftir áramótin í svona viku eða svo. En hugsa ekki meira um það er sátt svo sem á meðan ég get fengið svefn á milli 1-7
jæja farin að sinna stráknum.
Kv. Dísa
Ég er í bókaklúbb þar sem við hittumst nokkrar og ræðum bókina sem við vorum að lesa. Ég er búin að mæta einu sinni og var það voða fínt. Núna er komin tími til að hittast aftur og var lesefnið Skuggi vindsins og fólkið í kjallaranum (held ég). Vegna annríkis sem hefur ríkt á heimilinu vegna jólanna og eftir að litli kútur fæddist þá er ég aðeins komin á bls 120 af 549 í Skugga vindsins og hittingurinn er á sunnudaginn að mér skilst Þetta er náttúrulega engan vegin ásættanlegt og er því markmiðið að lesa mikið og vel um helgina. Held ég nái nú ekki að klára bókina en ætla nú að reyna að vera allavega hálfnuð en ég held ég láti fólkið í kjallaranum bíða betri tíma að sinni þó það sé bók sem mig hefur lengi langað að lesa.
Jæja ætla að setjast niður og lesa nokkrar bls fyrir svefninn (vest að maður geti ekki lesið bara í svefni þá væri þetta fullkomið Thíhíhí )
kv. Dísa bókaormur
oh ég trúi þessu bara ekki. Var komin með svaka gott prógram á litla kút í sambandi við svefn hjá honum en síðustu daga hefur hann ekki náð að sofna almennilega fyrr en á milli 23-1 í staðinn fyrir að sofna kl 21:00. og ligg ég því hjá honum næstum allan tíman að reyna að ná honum niður. Úff ég vona að þetta fari að ganga aftur eins vel og það gekk því þessu nenni ég sko ekki
Allaveg vigtaði mig í gær og ætla núna að vigta mig vikulega í staðin fyrir daglega Sem er auðvitað bara fáránlegt að gera, kveljast á hverjum degi yfir vigtinni er ekki sniðugt.
Jæja verð að fara að sjá um strákinn vill alls ekki sofna sem er ekki að gera mig glaða
í gær fór ég og stóri stúfur í bíó á Happy Feet það var í fyrsta skipti sem ég fór í bíó síðan í september og vá hvað það var gaman þó það hafi verið barnamynd sem við fórum á þá fannst mér voða gaman að komast aðeins út og upplifa bíóstemminguna
Matarræðið gengur svona upp og niður. Er ekki á DDV ennþá en er að bæta við mig ávöxtum og finna stemminguna við það að borða DDV mat þó ég sé ekki að vigta hann né neitt svoleiðis. Fékk mér t.d. súkkulaði búðingin á laugardagskvöldið með jarðaberjum ohhhhhh það var ÆÐISLEGT
Annars gengur lífið sinn vanagang. Er ennþá að aðlaga litla stúf að deginum, það er að segja er að fá hann til að sofa á nóttinni og vaka meira á daginn gengur bara bísna vel mundi ég segja, drengurinn vaknar svona einu sinni á nóttinni og fær sér að drekka og fer svo aftur að sofa, þetta finnst mér mjög góð framför miðað við að vakna 3 á nóttu og vaka stundum í 1-2 tíma í senn og sofa svo vel frá um kl 7-14
En jæja ætla að sinna drengjunum mínum
kveðja Dísa
Úff ég veit ég ætlaði að taka mig á í sumar í blogginu en einhverja hluta vegna hefur það ekki gengið eftir
Það hefur nú margt gerst síðan síðast. Við giftum okkur t.d. í sumar þann 06.08.06 og var það æðislegur dagur. Ég mun sko aldrei gleyma þeim degi og væri sko alveg til í að endurtaka hann það er að segja ekki með nýjum gaur heldur honum MM mínum. Ég eignaðist einnig barn í nóvember, nánar tiltekið strák, þannig að nú á ég tvo stráka (þrjá ef ég tel manninn minn með ). Einnig byrjaði stóri kútur í skólanum og hefur það verið rosa breyting. Maður horfir alveg á hann stækka og stækka og þroskast líka. Finnst nú pínu erfitt að viðurkenna fyrir sjálfri mér að hann getur ýmsa hluti eins og að labba einn heim úr skólanum og ýmislegt annað sem að manni dettur ekki í hug að börn geti þegar þau eru í leikskóla.
Allavega ég er sem sagt ný búin að eiga (aðeins 6 vikur) og því gengur lífið að mestu hjá mér þessa dagana að gefa litla kút að borða, koma reglu á svefnin hans og passa upp á að stóri kútur komist á réttum tíma í leikfimina og skólann Ég er þó aðeins farin að hugsa um matarræðið þó ég sé nú ekki beint á DDV heldur er ég að byrja smátt. T.d er ég farin að auka við ávextina, grænmetið og vatnið og reyna að minnka allt nammi og sykur. Bíð bara spennt eftir að geta byrjað á DDV aftur til að klára það sem ég var byrjuð á í fyrra og það er að komast niður í kjörþyngd. Vonandi verða nú samt eitthvað af kílóum fokin þegar ég byrja því enn á ég eftir að losna við nokkur kíló eftir að ég varð ólétt
Núna verða vonandi færslurnar fleiri og ætla ég að skrifa reglulegra því þá kannski gengur líka betur í matarræðinu ef ég þarf að segja frá hvernig þetta allt saman gengur
Ætla að hætta núna. Endilega skrifið í gestabókina mína eða komið með athugasemdir.
Kveðja Dísa
...jæja núna er maður að reyna að byrja aftur að blogga smávegis. Það hefur mikið gerst síðan síðast.
Þannig standa málin hjá mér að ég er að fara að gifta mig núna um verslunarmannahelgina og því hefur verið alveg brjálað að gera við undirbúning veislunar. Síðan eru aðrar stórar fréttir.... ég er komin 23 vikur á leið ... og er sett 18. nóv með litla krílið mitt Erum svaka ánægð með þetta allt saman. DDV hefur því staðið á hakanum en um leið og búið er að koma krílinu út í nóvember verður farið strax aftur á DDV ekki spurning enda enn markmiðið sett á kjörþyngd Þrátt fyrir hækkandi tölu þessa dagana
Jæja ætla að vera dugleg á næstunni og segja ykkur hvernig gengur að undirbúa brúðkaupið og fyrsta sameiginlega sumarfrí okkar verðandi hjóna
Stuðkveðjur af nesinu
Dísa